|
Ég er búin að vera að taka töluvert til í hausnum á mér aftur og rifja upp mínar ástæður fyrir því afhverju ég er að þessu. Hér eru upphaflegu punktarnir mínir:
Mínar ástæður: 2) Ég fann leið sem er að virka og ég er sátt við. Semsagt DDV. 3) Ég fæ mikinn styrk og hvatningu frá mínum
nánustu og fólkinu í kringum mig, hvort sem það er í skólanum, eða í
bloggheiminum :) Ég ætla að gera nákvæmlega það sama núna og þegar ég byrjaði á
danska í janúar. Ég ætla að undirbúa fyrstu vikuna algjörlega
fyrirfram, ákveða hvað á að vera í matinn, fara og versla (reyndar verð
ég að láta karlinn sjá um það, ég er að vinna svo mikið núna). Þetta
ætla ég að setjast við núna á eftir og nota uppskriftirnar sem ég á til
að hjálpa mér að hafa þetta sem fjölbreyttast. Restina af vikunni ætla
ég að nota í að taka betur til í hausnum á mér og svo verður lagt af
stað aftur á þriðjudaginn, í þessa löngu ferð! Ég hef verið að glíma við púkann þessar síðustu vikur, honum tekst
alltaf að koma inn hugsunum hjá mér á borð við að ef maður tekur eitt
lítið hliðarspor þá er vikan hvort sem er ónýt. Núna er ég á vaðrbergi
gagnvart þessum hugsunum og ætla mér að svara honum af fullum hálsi! Ég finn að vonleysi síðustu daga er eitthvað að minnka og ætla að nýta mér það til að koma mér í gang aftur. |
| Anna June 3, 2006 11:52 PM PDT Þetta eru alveg frábærar ástæður fyrir að grennast, ég hafði einmitt það takmark SÍÐAST þegar ég grenntist. Ég las það einmitt að það væri betra fyrir barnið ef maður væri í kjörþyngd. Lestu þessi markmið á hverjum degi til að hjálpa þér að ná takmarkinu, gangi þér rosalega vel. | ||
| zand June 6, 2006 07:07 PM PDT Frábær markmið... mjög í sömu línu og mín. Mundu samt að setja lífið ekki bara á hold þó svo að það séu nokkur aukakíló utan á þér... ég gerði það um tíma en er hætt því núna og ætla t.d. að gifta mig í sumar þrátt fyrir að vera ennþá í þriggjastafatölu. Við lifum bara einu sinni! (Förum bara í aðra myndatöku þegar ég er komin í kjörþyngd ;) ) Þú getur þetta sko alveg og ert búin að vera svo dugleg hingað til og nú er bara að halda áfram. Gangi þér rosalega vel :) | ||
| zand June 13, 2006 01:42 PM PDT Jæja er ekki kominn tími á að skrifa eitthvað hingað inn?? Og hvernig er það, er ekki vigtun hjá þér í dag? Skýrslu eftir vigtun takk! ;) Gangi þér rosa, rosa vel :) | ||
| Leave a Comment: |