Entry: *Ljótasta blótsorð í heimi* Monday, May 22, 2006



Þið verðið bara að velja ykkur blótsyrði þarna sjálf, kunni ekki alveg við að setja það þarna inn!

Mér gengur EKKERT að koma mér í gang aftur! Hausinn er ekki með! "Æ fáðu þér nú einn mola, bara svona til að trappa þig niður" svo lætur maður undan og þá kemur "nú er vikan hvort sem er ónýt, þú getur étið eins mikið af þessu og þú vilt, endilega fáðu þér bara meira, það skiptir ekki máli"

Hafði tekist að halda mér algjörlega frá sykri þar til í þessari viku! Er bara ferlega ósátt við sjálfa mig og fúl! Veit bara ekki hvernig ég kem mér í gang aftur!!!!!

   6 comments

Verðandi Mjóna
May 23, 2006   12:03 PM PDT
 
Þú mátt ekki gefast upp...það hefur gengið svo vel.....horfðu bara á þessi 12 kíló sem eru farin...ekki viltu fá þau aftur á þig....er það nokkuð.....
Koma svo stelpa þú getur þetta :)
Gangi þér vel
zand
May 23, 2006   02:42 PM PDT
 
Alveg bannað að gefast upp!! Þú getur þetta alveg... sjáðu bara kílóin sem eru farin! Því fyrr sem þú byrjar aftur... því fyrr verður þetta búið og þú mesta gellan í bænum :) Gangi þér vel!
Anna
May 24, 2006   12:05 AM PDT
 
Veit þú getur þetta, taktu þér bara tak, kauptu þér FULLT af grænmeti og dekraðu við þig í mataræðinu. Það er svo svakalega mikið af góðgæti sem við megum fá. Þú veist að við fylgjumst með þér, við bloggsystur þínar :)
gorkúlan
May 30, 2006   12:02 AM PDT
 
já haltu áfram að reyna að finna gírinn.... ég sé að margir eiga í erfiðleikum... þar á meðal ég .... en ?... við gefumst ekkert upp:) knús;);)
Elsa Hlín
May 30, 2006   03:44 PM PDT
 
Þú finnur gírinn það er ég viss um það eiga svo margir erftt núna. Við getum þetta allar 1 2 og 3.
Gangi þér vel.
Baráttukveðja Elsa Hlín
Ragnheiður
May 31, 2006   11:06 AM PDT
 
Hæ hæ....ertu ekkert að fara að koma aftur.....en allvega máttu færa mig niður um flokk.....kimin í 15 kílóin......og mátt alveg hafa linkinn undir nafni...Ragnheiður í staðin fyrir verðandi mjóna....
....Í vonum um að heyra í þer fljótlega :)......

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments