Entry: Hehemm og áskorun! Saturday, May 13, 2006



Hehemm...þarf ég að segja meir. Það er víst kominn laugardagur og mín ennþá í sukkinu! Hugsunin "æj, vikan er hvort sem er ónýt" er límdinn í eyrað á mér á replay og yfirgnæfir nýja Nylon lagið sem hefur setið þar fast síðan ég heyrði það fyrst!

Ég sem ætlaði að taka svo hart á því! Ég er búin að ákveða að leyfa þessari hugsun að eiga vinninginn. Ég ætla að fara og versla allt sem þarf á mánudaginn, fá karlinn til að hjálpa mér við það, og svo verður þetta tekið með trukki á þriðjudagsmorgun.

Ég er búin að vera mjög dugleg að fela mig bakvið þá afsökun að það sé hvort sem er ekki til neitt grænmeti á heimilinu svo ég geti alveg eins fengið mér eitthvað sull!

Ég var annars að taka áskorun við strák sem ég þekki. Hann þarf að losa sig við 17kg.Við ætlum að byrja að taka 8 vikur, sá sem losar sig við meira á þeim tíma fær verðlaun frá hinum. Svo verður farið af stað í næstu 8 vikur! Ég ákvað nú aðallega að taka þessu þar sem mig grunaði að þetta kæmi mér í gang aftur, það er svo mikið keppnisskap í mér. Við byrjum á þriðjudaginn af því að það eru vigtunardagar hjá mér :)

   4 comments

Verðandi Mjóna
May 15, 2006   09:13 AM PDT
 
Gangi þér rosalega vel í áskorunni:)
zand
May 17, 2006   09:37 AM PDT
 
Gangi þér rosa vel :) Ertu ekki örugglega komin uppúr sukkinu? Jú ég veit það alveg :)
Anna
May 17, 2006   06:57 PM PDT
 
Er þessi áskorun ekki bara einmitt sem þú þarft til að byrja aftur. Gangi þér vel :)
gorkúlan
May 19, 2006   12:26 AM PDT
 
já er það ekki!!!og koma svo:) knús....

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments