|
Mánudagskvöld og ég bara að láta vita að hjartað í mér slái enn. Prófatörnin klárast á miðvikudaginn og af því tilefni ætla ég að fagna með bekknum mínum um kvöldið. Ætlum að gæsa eina í bekknum og verðum í bústað yfir nóttina með grilliog tilheyrandi fögnuði. Ætla að fá mér í glas ef ég verð í þannig stuði, það myndi þá vera það fyrsta síðan í september '06! Þessi vika er bara einn stór ruslahaugur sem ég ætla að hafa með mér í vigtun á morgun og skilja eftir þar. Miðvikudagurinn verður reyndar ekki 100% þar sem þetta partý er þá, en strax á fimmtudag verður tekið til í mataræðinu aftur. Þessa viku held ég að ég sé búin að borða á öllum skyndibitastöðum í bænum! Svei mér þá, og alls ekki verið að velja það skynsamlega, nema jú, ég hef haldið mig frá sykrinum! Held ég hafi þurft smá pásu frá þessu öllu, það verður erfitt að byrja aftur, ég veit það, en ég skal gera það! Ætla ekki að eyðileggja árangurinn minn! Ekkert elsku mamma núna sko!!!!! |
| Verðandi Mjóna May 9, 2006 10:22 AM PDT þetta kemur allt.....verður bara að vera ákveðin eftir prófin........eins og mig heyrist þú alveg vera......gangi þér bara vel | ||
| Anna May 12, 2006 11:14 PM PDT Gangi þér bara sem best í prófunum, þú tekur bara á mataræðinu þegar þú ert búin í prófunum. Held það sé ekki hægt að halda 100% DDV í prófum. | ||
| Leave a Comment: |