|
Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer upp á vigtinni eftir að ég byrjaði í DDV. Eins og ég sagði þá veit ég alveg hvað olli þessu en auðvitað er maður ósáttur við að vera ekki að standa sig og þá er bara að hífa sig upp á r***gatinu Ég veit líka núna að ég þarf að vera betur, mun betur, undirbúin matarlega séð fyrir næstu verkefnatörn. Hún verður nú sem betur fer ekki fyrr en um jólin Endilega þið hin sem eruð að fara í svona törn, verið búin að skipuleggja ykkur MJÖG vel. Er reyndar með gleðitíðindi. Fékk verknámspláss á Akureyri í haust þannig að ég þarf ekki að kvíða þeim tíma matarlega séð. Maður hefur verið að leigja einhverjar kompur eða búið inn á einhverjum undanfarin 2 verknám og lítið getað eldað eða ráðið hvað sé í matinn. Nú verð ég bara heima hjá mér og al sæl með það auðvitað Jæja, ætla að uppfæra teljarana mína snöggvast og skella mér í lærdóminn. |
| Björk April 25, 2006 10:24 PM PDT æ æ Leiðinlegt þegar að vigtin fer upp. Það hefur líka komið fyrir hjá mér og veitt mér kröftugt spark í rassinn... Verknám hvað ?? hvað ertu að læra ?? | ||
| ladyxxl April 25, 2006 11:38 PM PDT Glatað þegar viktin fer upp en samt er bara að brosa og halda áfram :) Til lukku með plássið og gangi þér vel áfram :) | ||
| Verðandi Mjóna April 26, 2006 12:44 PM PDT Æ enn leiðinlegt með vigtina....en stundum þarf maður spark í rassinn......vonandi gengur betur í næstu viku....koss og knús | ||
| Hildur April 26, 2006 03:03 PM PDT Já það er fúlt þegar vigtin fer upp á við. En það góða við það er samt að hún fer þá bara meira niður næst. Til lukku með verknámsplássið | ||
| muldur April 26, 2006 04:03 PM PDT oh glatað þegar vigtin fer upp, alveg sama þótt maður viti ástæðuna, þetta hefur nú komið oftar en einu sinni fyrir hjá mér, en hún hefur sem betur fer farið niður aftur :) pjúff. Er einmitt að ná mér á strik núna og við getum það alveg. Já ekki spurning um að maður verður að skipuleggja sig það er númer 1,2,og 3 :) til hamingju með plássið, og gangi þér vel | ||
| Leave a Comment: |