Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Monday, August 28, 2006
Nýja síðan

Nýja síðan mín!

http://dadey.wordpress.com


Skrifað klukkan 04:23 pm af: [Daðey Arnborg]
Eitthvað að segja?  

Mætt aftur!

Jæja, þá er ég loksins tilbúin til að halda áfram!!! Fór í gær og verslaði allt mögulegt inn, og það er laaaaangt síðan mér hefur liðið svona vel með innkaupakerruna mína Big Smile Hrein hollusta!! Ætla að mæta í vigtun á morgun, seinnipartinn, en byrja að borða eftir DDV í fyrramálið. Kvíði fyrir vigtuninni, einfaldlega af því að ég hef bætt á mig töluverðu, og örugglega að nálgast upphafspunktinn aftur. Það þýðir ekkert að væla það, eða í það minnsta hef ég ákveðið að nota orkuna frekar í að ná þessu af mér heldur en að væla það sem orðið er!!

Wish me luck!!!

 


Skrifað klukkan 09:43 am af: [Daðey Arnborg]
(2) búnir að tjá sig  

Tuesday, June 13, 2006
Vigtun í dag!

Jæja, ég fór í vigtun í dag og það var 2.1 upp síðan síðast. Þannig að ég er núna búin að missa 9 kg í stað 12.1. Það er svosem ekkert svo svakalegt en nú er ég tilbúin að halda áfram og sátt við allt saman!

Dagurinn búinn að vera erfiður en 100% í alla staði

Var að koma úr vinnunni og er að fara á morgunvakt á morgun svo ég hef þetta ekki lengra í bili...

Skrifað klukkan 11:24 pm af: [Daðey Arnborg]
(6) búnir að tjá sig  

Friday, June 02, 2006
Agalegt hvernig maður fer með sig!

Þá eru búnar 2 vigtanir sem ég mætti ekki í...skammast mín ferlega! Hef ekki mætt af því að ég hef einfaldlega ekki verið að gera neitt, ég er búin að vera algjörlega 100% i öfuga átt! Alltaf segist maður ætla að rífa sig upp en gerir svo aldrei neitt í því.

Ég er búin að vera að taka töluvert til í hausnum á mér aftur og rifja upp mínar ástæður fyrir því afhverju ég er að þessu. Hér eru upphaflegu punktarnir mínir:
  • Ég vil ekki vera feit þegar ég gifti mig, mér er illa við myndatökur og vil ekki að ég verði eins óánægð með brúðkaupsmyndirnar og ég er með stúdentsmyndirnar mínar
  • Ég vil ekki verða ófrísk fyrr en ég er komin í kjörþyngd, það eru ótal áhættuþættir fyrir mig og barnið ef ég er of þung
  • Ég vil ekki lengur þurfa að skammast mín fyrir það hvernig ég er, ég er klár stelpa og ætti ekki að hafa neitt að skammast mín fyrir, en ég geri það af því að ég er ekki ánægð með sjálfa mig
  • Mig langar að líta vel út og vera glæsileg stelpa
  • Ég er hrædd um að ef ég lendi í slysi að þá verði ekki hægt að bjarga mér af því að ég er of þung, eins ef ég lamast, þá á ég mun erfiðara með alla endurhæfingu og bata, svo ég tali nú ekki um að sjá um sjálfa mig og aðra, ef ég er of feit
Hér koma svo pælingar um það afhverju mér hefur gengið svo vel (fram að þessu):

Mínar ástæður:
1) Ég var í verknámi á Grensás fyrir áramót (er nemi í iðjuþjálfun) og þar blasti það við mér svart á hvítu hversu dýrmætt það er að vera heilbrigður og hversu svakalega mikil munur var á bata, eða árangri endurhæfingar, hjá þeim sem voru líkamlega vel á sig komnir og hjá þeim sem voru vel í holdum. Þarna kviknaði ljós í kollinum um að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Það væri ekki í mínum höndum hvort eitthvað kæmi einhvern tíman fyrir mig, en það væri í mínum höndum að vera eins vel á mig komin og mögulegt væri til þess að takast á við það. Þetta ljós logar sem betur fer enn í kollinum á mér og styrkist í hvert skipti sem ég hugsa til Grensáss.

2) Ég fann leið sem er að virka og ég er sátt við. Semsagt DDV.

3) Ég fæ mikinn styrk og hvatningu frá mínum nánustu og fólkinu í kringum mig, hvort sem það er í skólanum, eða í bloggheiminum :)

Ég ætla að gera nákvæmlega það sama núna og þegar ég byrjaði á danska í janúar. Ég ætla að undirbúa fyrstu vikuna algjörlega fyrirfram, ákveða hvað á að vera í matinn, fara og versla (reyndar verð ég að láta karlinn sjá um það, ég er að vinna svo mikið núna). Þetta ætla ég að setjast við núna á eftir og nota uppskriftirnar sem ég á til að hjálpa mér að hafa þetta sem fjölbreyttast. Restina af vikunni ætla ég að nota í að taka betur til í hausnum á mér og svo verður lagt af stað aftur á þriðjudaginn, í þessa löngu ferð!

Ég hef verið að glíma við púkann þessar síðustu vikur, honum tekst alltaf að koma inn hugsunum hjá mér á borð við að ef maður tekur eitt lítið hliðarspor þá er vikan hvort sem er ónýt. Núna er ég á vaðrbergi gagnvart þessum hugsunum og ætla mér að svara honum af fullum hálsi!

Ég finn að vonleysi síðustu daga er eitthvað að minnka og ætla að nýta mér það til að koma mér í gang aftur.




Skrifað klukkan 12:46 pm af: [Daðey Arnborg]
(3) búnir að tjá sig  

Monday, May 22, 2006
*Ljótasta blótsorð í heimi*

Þið verðið bara að velja ykkur blótsyrði þarna sjálf, kunni ekki alveg við að setja það þarna inn!

Mér gengur EKKERT að koma mér í gang aftur! Hausinn er ekki með! "Æ fáðu þér nú einn mola, bara svona til að trappa þig niður" svo lætur maður undan og þá kemur "nú er vikan hvort sem er ónýt, þú getur étið eins mikið af þessu og þú vilt, endilega fáðu þér bara meira, það skiptir ekki máli"

Hafði tekist að halda mér algjörlega frá sykri þar til í þessari viku! Er bara ferlega ósátt við sjálfa mig og fúl! Veit bara ekki hvernig ég kem mér í gang aftur!!!!!

Skrifað klukkan 12:34 pm af: [Daðey Arnborg]
(6) búnir að tjá sig  

Saturday, May 13, 2006
Hehemm og áskorun!

Hehemm...þarf ég að segja meir. Það er víst kominn laugardagur og mín ennþá í sukkinu! Hugsunin "æj, vikan er hvort sem er ónýt" er límdinn í eyrað á mér á replay og yfirgnæfir nýja Nylon lagið sem hefur setið þar fast síðan ég heyrði það fyrst!

Ég sem ætlaði að taka svo hart á því! Ég er búin að ákveða að leyfa þessari hugsun að eiga vinninginn. Ég ætla að fara og versla allt sem þarf á mánudaginn, fá karlinn til að hjálpa mér við það, og svo verður þetta tekið með trukki á þriðjudagsmorgun.

Ég er búin að vera mjög dugleg að fela mig bakvið þá afsökun að það sé hvort sem er ekki til neitt grænmeti á heimilinu svo ég geti alveg eins fengið mér eitthvað sull!

Ég var annars að taka áskorun við strák sem ég þekki. Hann þarf að losa sig við 17kg.Við ætlum að byrja að taka 8 vikur, sá sem losar sig við meira á þeim tíma fær verðlaun frá hinum. Svo verður farið af stað í næstu 8 vikur! Ég ákvað nú aðallega að taka þessu þar sem mig grunaði að þetta kæmi mér í gang aftur, það er svo mikið keppnisskap í mér. Við byrjum á þriðjudaginn af því að það eru vigtunardagar hjá mér :)


Skrifað klukkan 11:01 am af: [Daðey Arnborg]
(4) búnir að tjá sig  

Monday, May 08, 2006
Sukk!

Mánudagskvöld og ég bara að láta vita að hjartað í mér slái enn.

Prófatörnin klárast á miðvikudaginn og af því tilefni ætla ég að fagna með bekknum mínum um kvöldið. Ætlum að gæsa eina í bekknum og verðum í bústað yfir nóttina með grilliog tilheyrandi fögnuði. Ætla að fá mér í glas ef ég verð í þannig stuði, það myndi þá vera það fyrsta síðan í september '06!

Þessi vika er bara einn stór ruslahaugur sem ég ætla að hafa með mér í vigtun á morgun og skilja eftir þar. Miðvikudagurinn verður reyndar ekki 100% þar sem þetta partý er þá, en strax á fimmtudag verður tekið til í mataræðinu aftur.

Þessa viku held ég að ég sé búin að borða á öllum skyndibitastöðum í bænum! Svei mér þá, og alls ekki verið að velja það skynsamlega, nema jú, ég hef haldið mig frá sykrinum! Held ég hafi þurft smá pásu frá þessu öllu, það verður erfitt að byrja aftur, ég veit það, en ég skal gera það! Ætla ekki að eyðileggja árangurinn minn!

Ekkert elsku mamma núna sko!!!!!


Skrifað klukkan 10:03 pm af: [Daðey Arnborg]
(2) búnir að tjá sig  

Tuesday, May 02, 2006
Jahérna hér!

Það fóru 700gr þessa viku, sem ég eiginlega bara skil ekki, en er auðvitað þakklát fyrir. Gefur manni smá vonarneista um að maður verði kannski ekki alveg úti að aka á vigtinni eftir þessa próftíð Big Smile

Fyrsta próf á morgun og ætli ég leyfi mér ekki tíma í smá bloggrúnt þegar ég kem heim úr því Smile Þetta er svo síðasta vor-próftíðin mín...þar sem að næsta vor verður "bara" lokaverkefni Wink Gaman að því!

Smá svona djók sem mér datt í hug í örvæntingu minni Wink Það eru svo margir sem ætla sér að taka "hörkuviku" þegar þeir hafa átt hliðarspor, en hvað gerir maður þegar maður fattar morguninn sem maður er að fara í vigtun að maður hefur kannski ekki staðið sig nógu vel???? Hér er lausnin:

  • Borða ekkert fram að vigtun
  • Klippa táneglurnar
  • Klippa neglur á fingrum (og við erum að tala um alveg niður í skinnWink)
  • Fjarlægja alla skartgripi, líka trúlofunar/giftingarhring!!!
  • Plokka á sér augabrúnirnar
  • Særa hárið örlítið, já eða bara klippa sig stutt (ef maður klippir stutt þá minnka líkurnar á því að maður geti notað þetta ráð aftur, svo farið varlega í það)
  • Vigta fötin sín og velja léttustu fötin sem maður á, sleppa nærfötunum!!!

Hehe, ekki að ég hafi gert þetta í morgun, en ég sver það, þegar maður hefur hliðarspor á samviskunni þá hvarflar ýmislegt að manni! Wink


Skrifað klukkan 02:01 pm af: [Daðey Arnborg]
(5) búnir að tjá sig  

Monday, May 01, 2006
Rugl og rúst!

Mataræðið mitt er allt í rugli og rúst þessa dagana og ég á pottþétt eftir að þyngjast aftur þessa viku og líklega næstu líka. Get lítið sinnt matarlegu hliðinni, hef enga matarlyst og gef mér ekki tíma til að elda vegna prófanna!

Ætla að reyna að sætta mig bara við að þetta sé svona og taka á því eftir próf! Skólinn hefur forgang!


Skrifað klukkan 06:23 pm af: [Daðey Arnborg]
Eitthvað að segja?  

Tuesday, April 25, 2006
Upp var það!

Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer upp á vigtinni eftir að ég byrjaði í DDV. Eins og ég sagði þá veit ég alveg hvað olli þessu en auðvitað er maður ósáttur við að vera ekki að standa sig og þá er bara að hífa sig upp á r***gatinu Hurmph

Ég veit líka núna að ég þarf að vera betur, mun betur, undirbúin matarlega séð fyrir næstu verkefnatörn. Hún verður nú sem betur fer ekki fyrr en um jólin Smile Maður var á kafi í hópverkefnum og ætlaði bara að vera til 18 en það dróst kannski til 9 eða miðnættis og svo var bara gripið það sem lá hendi næst þegar maður kom heim!

Endilega þið hin sem eruð að fara í svona törn, verið búin að skipuleggja ykkur MJÖG vel.

Er reyndar með gleðitíðindi. Fékk verknámspláss á Akureyri í haust þannig að ég þarf ekki að kvíða þeim tíma matarlega séð. Maður hefur verið að leigja einhverjar kompur eða búið inn á einhverjum undanfarin 2 verknám og lítið getað eldað eða ráðið hvað sé í matinn. Nú verð ég bara heima hjá mér og al sæl með það auðvitað Big Smile Sérstaklega þar sem þetta eru alveg 7 vikur!!!

Jæja, ætla að uppfæra teljarana mína snöggvast og skella mér í lærdóminn.


Skrifað klukkan 06:57 pm af: [Daðey Arnborg]
(5) búnir að tjá sig  

Next Page