Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Tuesday, April 25, 2006
Ekki góð vika!

Ég er nú aldeilis hrædd um að léttingur vikunnar verði ekki mjög mikill...ef hann verður einhver. Er búin að vera að kafna í skólanum og ekki náð að borða almennilega. Hef samt ekki verið að borða eitthvað sem er á bannlista, fyrir utan eina máltíð, en verið að skipta of oft út ávexti og svona eftir hagræðingum. Það verður bara að hafa það, skólinn tekur sinn tíma þegar verkefnavinna stendur í algjöru hámarki. Gerði mér ekki alveg grein fyrir þessu fyrirfam svo ég var ekki nægilega vel undirbúin eða skipulögð matarlega séð.

Próf í vændum og þá vona ég að ég sjái fram á betri tíð, dett svo gjarnan í að borða ekkert í prótftíð Hurmph Ég veit hverju ég þarf að passa mig á og er því betur undirbúin fyrir vikið.

Þurfti að renna eftir karlinum um daginn þar sem hann slasaði sig í vinnunni og sá dagur var ekki góður matarlega séð og svindlið skrifast á þann dag. Það var bara ekkert annað í stöðunni þegar svona kemur upp fyrirvaralaust.

Vigtun á eftir og allt kemur í ljós...


Skrifað klukkan 12:19 pm af: [Daðey Arnborg]
(1) búnir að tjá sig  

Wednesday, April 19, 2006
Ávaxta-auli...!

Ég fór í Hagkaup í dag, eins og svo oft áður, en ákvað í þetta skiptið að kaupa mér einhverja ávexti sem ég hef aldrei prófað áður. Keypti Ferskjur, Papayja og Nektarínur. Svo kann maður auðvitað ekkert að borða þetta!

Ferksjan segir sig sjálf, bara bíta í Wink Hitt hef ég ekki hugmynd um. Væntanlega borðar maður ekki börkinn á Papayja, en hvað, á maður að flysja eins og peru eða skera í báta eða hvað??? Og Nektarínan, má bara bíta í hana???

Það vantar svona broskarl hérna sem roðnar...því ég dauðskammast mín fyrir að spurja svona heimskulega Wink Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt...

Má svo til með að skella mynd af 10kg verðlaununum mínum. Etu' (svarti - í höfuðið á Samuel Etu' fótboltamanni hjá Barcelona FC.) og Zuko (grái - í höfuðið á Danny Zuko, karakterinn sem John Travolta lék í Grease, Zuko passaði betur við Etu' heldur en Travolta Wink) Er svo búin að ákveða að fá mér tannhvítingu í 15kg verðlaun Big Smile


Skrifað klukkan 02:42 pm af: [Daðey Arnborg]
(5) búnir að tjá sig  

Tuesday, April 18, 2006
Vigtin

Jæja, ég fékk staðfestingu á því að ég hafi verið að gera vel í páskafríinu...en um leið kannski smá áminningu um að ég hefði auðvitað gert betur. Fóru 1,4 kg, sem er auðvitað ágætt bara Big Smile og í raun kannski bara mjög gott þar sem ég hefði getað sleppt mér í vitleysu og páskaegg en gerði það ekki Big Smile

Má vera stolt af mér held ég barasta Big Smile


Skrifað klukkan 04:18 pm af: [Daðey Arnborg]
(2) búnir að tjá sig  

Páskar...

Gleðilega páska, þó seint sé Wink

Við skötuhjú brugðum okkur vestur í heimahaga mína, alltaf jafn afslappandi og gott. Fínt að hlaða batteríin svona rétt fyrir próf Big Smile

Ég kom sko aldeilis ekki tómhent heim, sótti 10kg verðlaunin mín, kisurnar mínar. 2 litlir sætir högnar Big Smile ferlega hressir og kátir Big Smile

Páskarnir voru fínir matarlega séð. Ég leyfði mér örlítið meira en venjulega, í góðu og skynsamlegu hófi, borðaði t.d. skinnið á kjúklingnum á páskadag, en sykur fór ekki inn fyrir mínar varir. Ekkert samviskubit í gangi, enda ekki tilefni til og svo er bara vigtun í dag fyrir árangur síðustu 2ja vikna. Ég verð sátt við 700-900gr fyrir þennan tíma Smile Sjáum hvað verður.

Ég má nú til með að deila með ykkur hvað það var nú gaman að fara á vigtina hjá mömmu og pabba og sjá 2ja stafa tölu, 99,5...þó ég viti að hún er ekki marktæk...bara góð áminning um hvað það er stutt í þetta Big Smile


Skrifað klukkan 09:36 am af: [Daðey Arnborg]
Eitthvað að segja?  

Thursday, April 06, 2006
So far so good...!

Enn sem komið er hefur allt verið skrifað niður, allt verið vigtað og allt verið 100%...nema vatnið...er búin að ná því í 1,5l á dag og stefni á 2l í dag! Fiskurinn meira að segja allur að "smella inn", komin með 4 krossa í þessari viku Big Smile

Keypti mér bók nr 4 á þriðjudaginn og vá...girnó smirnó!!! Gerði Chocoladkletter eða eitthvað svoleiðis (man ekki alveg nafnið, bls 85). Geðveikt gott...endilega prufið að gera þetta!! Græðgin var slík að ég tók ekki einusinni mynd Wink 

Það er brjálæði að gera hjá mér í skólanum svo ég tek ekki marga bloggrúnta, en reyni samt að komast eitthvað áleiðis með það Smile


Skrifað klukkan 02:32 pm af: [Daðey Arnborg]
(8) búnir að tjá sig  

Tuesday, April 04, 2006
Kick my a*s ;)

Já, þarna kom það! Sparkið sem ég er búin að þurfa á að halda í einhvern tíma núna! Ég var vond við vigtina þessa viku og þarna kom það í bakið á mér. Ég fór niður um 100gr, og allt niður er gott, en eins og ég segi þá er ég hálf fegin að það var ekki meir.

Ég er búin að vera hálf kærulaus, ekki dugleg í vatninu og löt að klára grænmetið mitt, ekki búin að skrifa boffs og búin að vera að slumpa hér og þar. Svona eiginlega eins og litlu krakkarnir, prufa hvað maður kemst langt og nú er það hingað og ekki lengra! Ofan á það allt var tími mánaðarins í gangi, og svefninn bara á kolröngu róli!

Ég er nú ekki að upplifa mig sem klúðrara og þar fram eftir götunum, heldur er ég bara búin að sjá að ég þarf að taka þetta föstum tökum, öðruvísi gerist það ekki. Það er reyndar hrottalegur tími framundan hjá mér, brjálað að gera í skólanum, páskafrí með tilheyrandi ferð vestur, og svo PRÓF!!!! Ég held samt að ég sé andlega undir það búin að takast á við þetta allt saman :)

Það verða engin hliðarspor leyfð um páskana, bara kemur ekki til greina. Verð fyrir vestan hjá mömmu og pabba og ætla að hafa með mér þetta allra nauðsynlegasta (vigt, sætu, kakó, dropa, ísvél...) og hitt verður hægt að versla á staðnum :)

Engin vigtun á næsta þriðjudag svo það eru 2 vikur til að kljást við...

Var að setja inn nýjar cm tölur <--- klikka þarna...


Skrifað klukkan 04:20 pm af: [Daðey Arnborg]
(3) búnir að tjá sig  

Tuesday, March 28, 2006
Markmið 3...

Markmiði 2 er náð, 5kg nr 2 farin, s.s 10kg, og meira að segja 800gr meira en það :) Vigtin í dag sagði niður um 1,3kg :)

Sé sko aldeilis ekki eftir að hafa tekið mér tíma í að elda áður en ég fór austur og hafa með mér! Extrað varð reyndar flest eftir heima, svo að ég var róleg í því, sem skýrir sennilega hveru mikið vigtin fór niður :)

Tók bloggrúnt áðan, frábært hvað allir eru að standa sig vel :) Áfram við :)

Næsta markmið er 5kg nr 3 fyrir 2. maí :) Reikna með að smella inn myndum í kvöld eða á morgun :)

Bætt við seinna:
Myndirnar eru komnar hér...það þarf lykilorð, þeir sem vilja það geta haft samband í comment eða arnborg@mi.is Ekki vera feimin við að biðja um það :) Það er reyndar það sama og á fyrri möppuna fyrir þá sem vita það :)


Skrifað klukkan 03:56 pm af: [Daðey Arnborg]
(13) búnir að tjá sig  

Sunday, March 26, 2006
Ég er komin heim í heiðardalinn...

...ég er komin heim í leit að ró...

Kannski ekki alveg, og ætli því hafi ekki verið alveg öfugt farið?? ;)

Ég er allavega frænkunni ríkari þar sem bróðir minn og kona hans voru að eignast sitt fyrsta kríli :) Get ekki beðið eftir að komast suður að kíkja á hana :)

Hvað um það, búin að eiga mjög góða helgi í faðmi karlsins og lifa vel á örbylgumatnum sem ég bjó mér til áður en ég fór :) Hádegismaturinn varð skyr og harðfiskur til skiptis en grænmetið var svona hitt og þetta og ég hefði alveg mátt vera duglegri í því með hádegismatnum. Ég gerði allavega eins vel og ég gat og naut helgarinnar :)

Búin að vera netlaus og ætla að bæta upp fyrir "tapaða" bloggrúnta í kvöld :)


Skrifað klukkan 07:54 pm af: [Daðey Arnborg]
(4) búnir að tjá sig  

Wednesday, March 22, 2006
Austurland...hér kem ég!

Tók mig aðeins saman í andlitinu í gær og held að ég hafi aðeins rifið mig upp úr þessu vonleysi. Ég s.s eldaði bara 4 kvöldmáltíðir, græjaði 4 morgunmatarmáltíðum og hádegismaturinn verður þá bara fiskur og hrátt grænmeti. Hlýt að geta fundið fisk einhverstaðar...annars verður það bara túnfiskur. Held ég hafi náð að gera sem best úr þessu. Ætla aðhafa þetta bara með mér, því það er aðgangur að örbylgjuofni, þannig að þetta ætti að vera fínt :)

Takk fyrir allt peppið :) Þið eruð meiriháttar!


Skrifað klukkan 11:42 am af: [Daðey Arnborg]
(6) búnir að tjá sig  

Tuesday, March 21, 2006
Veit ekki mitt rjúkandi ráð!

Voðalega er ég orðin þreytt á þessum leiða! Einhvernveginn alveg sama hvað ég geri og hvað ég hugsa þá bara finn ég ekki rétta gírinn aftur. Ég er komin með ógeð af því að borða, komin með ógeð af grænmeti og bara þoli þetta ekki lengur! Held ég sé á mörkunum að verða þunglynd af þessum leiða!!!

Þetta er einhvernveginn líka svo að há mér þessa dagana. Þó það gangi allt vel og þetta hefst að lokum, þá langar mig að taka mér pásu frá DDV í eina viku. Langar að fara austur á morgun og vera yfir helgina. Njóta þess bara að vera með karlinum...en þar get ég ekki eldað og borða skv. DDV.

Er orðin þreytt á þessu og veit ekki hvað ég á að gera!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Skrifað klukkan 06:58 pm af: [Daðey Arnborg]
(3) búnir að tjá sig  

Previous Page Next Page