Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Monday, February 13, 2006
Nammi namm namm namm og aftur NAMM!!!

Og svo aftur nammi nammi nammi. Ég var að klára að borða og bara varð að deila þessari uppskrift með ykkur!

Var búin að ákveða að hafa súrsætt svínakjöt í kvöldmatinn og fann uppskrift á síðu hjá einhverri ykkar, en átti svo afskaplega takmarkað af því grænmeti sem var talið upp þar. Ég sullaði þá bara hinu og þessu saman og úr varð þessi svakalega góði súrsæti réttur! Athugið að þetta var mallað ofan í karl og konu (hann fékk 190gr af elduðu kjöti og ég 150gr =340gr, þetta voru 540gr af hráu kjöti svo það rýrnar töluvert við suðu!)

*1 pakki svínagúllas (rýrnar töluvert við suðu!)
*600gr grænmeti (ég notaði papriku, lauk, sveppi, og gulrætur sem ég skar í þunnar ræmur, passið að hafa nóg því að maður vigtar auðvitað eftir á og þá er súrt að vera ekki með nóg grænt)
*8 sneiðar ananas + 8msk safi
*60gr tómatpúrra
*2 tappar borðedik
*2 msk sítrónusafi úr belg
*2 tsk sterkt sinnep 
*Smá fljótandi sætuefni

Svínakjötið sett í pott, vatn látið fljóta yfir, salti og pipar bætt út í og svínakjötskrafti. Látið sjóða í ca 30 mín, því lengur, því mýkra verður það.

Gulrætur skornar niður og settar á pönnu með 2tsk olíu. Leyfa þeim að stikna meðan hitt er skorið niður. Bætt við papriku og lauk og því leyft að stikna þar til laukurinn er orðinn gylltur. Þá er sveppunum bætt ofan í (þarf auðvitað ekki að vera í þessari röð en gulræturnar og paprikan hafa lengsta eldunartímann). Þessu er leyft að malla á pönnunni þar til sveppirnir eru orðnir eldaðir.

Þá bætti ég ananasinum og safanum af honum út í grænmetið. Skar ananasinn í litla bita fyrst. Leyfði þessu að malla meðan ég opnaði dós af tómatpúrru og setti 60gr af henni út í pönnuna. Hrærði öllu saman, bætti edikinu, sítrónusafanum, sinnepinu og sætuefninu út í og leyfði þessu að malla. Notaði svo vatn til að þynna betur út púrruna.

Veiddi kjötið uppúr og vigtaði það. Skellti því út í grænmetissullið og sósuna og leyfði því að malla á meðan ég sauð hrísgrjónin.

Ég segi sko bara Uncle Ben's what???!!!! Wink

Endilega prufið þessa uppskrift, sjúklega góð. Þetta eru samt 4 krossar í extra fyrir hvorn aðila, sinnepið og púrran. En vel þess virði!

Dagurinn búinn að vera 100%, reyndar 150%. Mín var meira að segja svo dugleg að skella spólu í videoið og taka 45 mín líkamsrækt Big Smile

Áfram ég! og auðvitað áfram þið! Sjáumst í vigtun á morgun ;)

 


Skrifað klukkan 07:07 pm af: [Daðey Arnborg]

olly
February 13, 2006   09:10 PM PST
 
Takk fyrir kvittið - já helgarnar eru erfiðari - það er svo mikið að gera - má ekki vera að því að borða og hvað þá að elda.

ég sé að þú ert í góðum málum - gúdd lökk á morgun
olly
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry