Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< May 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Monday, May 08, 2006
Sukk!

Mánudagskvöld og ég bara að láta vita að hjartað í mér slái enn.

Prófatörnin klárast á miðvikudaginn og af því tilefni ætla ég að fagna með bekknum mínum um kvöldið. Ætlum að gæsa eina í bekknum og verðum í bústað yfir nóttina með grilliog tilheyrandi fögnuði. Ætla að fá mér í glas ef ég verð í þannig stuði, það myndi þá vera það fyrsta síðan í september '06!

Þessi vika er bara einn stór ruslahaugur sem ég ætla að hafa með mér í vigtun á morgun og skilja eftir þar. Miðvikudagurinn verður reyndar ekki 100% þar sem þetta partý er þá, en strax á fimmtudag verður tekið til í mataræðinu aftur.

Þessa viku held ég að ég sé búin að borða á öllum skyndibitastöðum í bænum! Svei mér þá, og alls ekki verið að velja það skynsamlega, nema jú, ég hef haldið mig frá sykrinum! Held ég hafi þurft smá pásu frá þessu öllu, það verður erfitt að byrja aftur, ég veit það, en ég skal gera það! Ætla ekki að eyðileggja árangurinn minn!

Ekkert elsku mamma núna sko!!!!!


Skrifað klukkan 10:03 pm af: [Daðey Arnborg]

Verðandi Mjóna
May 9, 2006   10:22 AM PDT
 
þetta kemur allt.....verður bara að vera ákveðin eftir prófin........eins og mig heyrist þú alveg vera......gangi þér bara vel
Anna
May 12, 2006   11:14 PM PDT
 
Gangi þér bara sem best í prófunum, þú tekur bara á mataræðinu þegar þú ert búin í prófunum. Held það sé ekki hægt að halda 100% DDV í prófum.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry