Það fóru 700gr þessa viku, sem ég eiginlega bara skil ekki, en er auðvitað þakklát fyrir. Gefur manni smá vonarneista um að maður verði kannski ekki alveg úti að aka á vigtinni eftir þessa próftíð 
Fyrsta próf á morgun og ætli ég leyfi mér ekki tíma í smá bloggrúnt þegar ég kem heim úr því
Þetta er svo síðasta vor-próftíðin mín...þar sem að næsta vor verður "bara" lokaverkefni
Gaman að því!
Smá svona djók sem mér datt í hug í örvæntingu minni
Það eru svo margir sem ætla sér að taka "hörkuviku" þegar þeir hafa átt hliðarspor, en hvað gerir maður þegar maður fattar morguninn sem maður er að fara í vigtun að maður hefur kannski ekki staðið sig nógu vel???? Hér er lausnin:
- Borða ekkert fram að vigtun
- Klippa táneglurnar
- Klippa neglur á fingrum (og við erum að tala um alveg niður í skinn
)
- Fjarlægja alla skartgripi, líka trúlofunar/giftingarhring!!!
- Plokka á sér augabrúnirnar
- Særa hárið örlítið, já eða bara klippa sig stutt (ef maður klippir stutt þá minnka líkurnar á því að maður geti notað þetta ráð aftur, svo farið varlega í það)
- Vigta fötin sín og velja léttustu fötin sem maður á, sleppa nærfötunum!!!
Hehe, ekki að ég hafi gert þetta í morgun, en ég sver það, þegar maður hefur hliðarspor á samviskunni þá hvarflar ýmislegt að manni! 