Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< April 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01
02 03 04 05 06 07 08
09 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Tuesday, April 25, 2006
Upp var það!

Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer upp á vigtinni eftir að ég byrjaði í DDV. Eins og ég sagði þá veit ég alveg hvað olli þessu en auðvitað er maður ósáttur við að vera ekki að standa sig og þá er bara að hífa sig upp á r***gatinu Hurmph

Ég veit líka núna að ég þarf að vera betur, mun betur, undirbúin matarlega séð fyrir næstu verkefnatörn. Hún verður nú sem betur fer ekki fyrr en um jólin Smile Maður var á kafi í hópverkefnum og ætlaði bara að vera til 18 en það dróst kannski til 9 eða miðnættis og svo var bara gripið það sem lá hendi næst þegar maður kom heim!

Endilega þið hin sem eruð að fara í svona törn, verið búin að skipuleggja ykkur MJÖG vel.

Er reyndar með gleðitíðindi. Fékk verknámspláss á Akureyri í haust þannig að ég þarf ekki að kvíða þeim tíma matarlega séð. Maður hefur verið að leigja einhverjar kompur eða búið inn á einhverjum undanfarin 2 verknám og lítið getað eldað eða ráðið hvað sé í matinn. Nú verð ég bara heima hjá mér og al sæl með það auðvitað Big Smile Sérstaklega þar sem þetta eru alveg 7 vikur!!!

Jæja, ætla að uppfæra teljarana mína snöggvast og skella mér í lærdóminn.


Skrifað klukkan 06:57 pm af: [Daðey Arnborg]

Björk
April 25, 2006   10:24 PM PDT
 
æ æ Leiðinlegt þegar að vigtin fer upp. Það hefur líka komið fyrir hjá mér og veitt mér kröftugt spark í rassinn...

Verknám hvað ?? hvað ertu að læra ??
ladyxxl
April 25, 2006   11:38 PM PDT
 
Glatað þegar viktin fer upp en samt er bara að brosa og halda áfram :) Til lukku með plássið og gangi þér vel áfram :)
Verðandi Mjóna
April 26, 2006   12:44 PM PDT
 
Æ enn leiðinlegt með vigtina....en stundum þarf maður spark í rassinn......vonandi gengur betur í næstu viku....koss og knús
Hildur
April 26, 2006   03:03 PM PDT
 
Já það er fúlt þegar vigtin fer upp á við. En það góða við það er samt að hún fer þá bara meira niður næst. Til lukku með verknámsplássið
muldur
April 26, 2006   04:03 PM PDT
 
oh glatað þegar vigtin fer upp, alveg sama þótt maður viti ástæðuna, þetta hefur nú komið oftar en einu sinni fyrir hjá mér, en hún hefur sem betur fer farið niður aftur :) pjúff. Er einmitt að ná mér á strik núna og við getum það alveg. Já ekki spurning um að maður verður að skipuleggja sig það er númer 1,2,og 3 :) til hamingju með plássið, og gangi þér vel
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry