Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Thursday, February 16, 2006
Gúrkudrykkur

300g Gúrka
1 epli eða 1 pera
sítrónusafi úr belg
sætuefni
smá vatn

Gúrkan skorin í bita, eplið eða peran flysjað og þessu öllu skellt í blandarann (nema flusinu). Bæta við vatni, sítrónusafa og sætuefni. Gæti þurft svolítið vatn bara til að auðvelda blandaranum vinnuna. Gefur c.a 1/2 líter :)

 


Skrifað klukkan 06:20 pm af: [Daðey Arnborg]

zand
February 16, 2006   06:37 PM PST
 
Snilld! Ætla að prufa þetta og líka Oetker-konfektið þitt :) Gangi þér vel :) ps. ætla að leyfa mér að setja þig inní linka hjá mér :)
muldur
February 17, 2006   08:29 AM PST
 
hæ ætlaði að láta þig vita að mér fannst konfektið rosalega gott, en finnst það þurfa standa smá úr frystinum áður en ég borða það, annars koma svo miklar ísnálar, sko ég er með eina spurningu ætli það yrði rjómakenndara ef maður setti undanrennuduft í blönduna? en engu að síður snilld og líka svo fallegt fyrir augað og það segir mikið :)
Bollukrútt
February 17, 2006   03:16 PM PST
 
Var einmitt að spá í þessu með undanrennuduftið, er alveg þess virði að prufa það :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry