Litlu skrefin á leiðinni:
Næstu 5kg, skal nást fyrir 16.maí
Stóra markmiðið:
Skal nást fyrir 1.júní 2007



Velkomin á bloggið mitt. Ég heiti Daðey Arnborg og er 23 ára Vestjarðarmær, búsett á Akureyri. Ég, eins og svo margir aðrir, á í basli með aukakílóin og hef verið frá 17 ára aldri. Þann 5. janúar 2006 sagði ég þeim stríð á hendur og 10. janúar sama ár fór ég á minn fyrsta DDV fund.

Hér mun ég skrifa um það sem er mér efst í huga hvað varðar baráttuna hverju sinni. Endilega lítið inn sem oftast, þið þurfið ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Wednesday, February 15, 2006
Súkkulaði!

Mmm, fékk þessa líka brilliant hugmynd í gærkvöldi. Vissi reyndar ekki hversu brilliant hún væri fyrr en ég smakkaði hana núna áðan :)



2 dl mjólk
súkkulaðibúðingsduft frá Oetker
fljótandi sætuefni
karameludropar

Hitaðu mjólkina með búðingsduftinu og bættu sætuefninu og karameludropum út í (má að sjálfsögðu nota aðra dropa). Hrærðu þar til blandan þykknar og heltu henni svo í lítil form (t.d. úr dagatali eða ísmolabox, en það fást líka fín form í Húsasmiðjunni) og leyfðu þessu að þykkna þar. Skelltu svo álpappír yfir og inn í frost.

Þetta verða svolítið margir molar, alveg slatti, en fínt að eiga þetta bara í frystinum :)

Mitt var í frosti yfir nótt og að leyfa þessu að bráðna upp í sér er eins og að borða konfekt :) Ætla næst að prufa vanilluduft. Hér er mynd!

Mæli líka með DDV sætuefninu. Keypti það í gær og það er margfalt betra en hitt. Hreinlega líkist flórsykri :)


Skrifað klukkan 12:53 pm af: [Daðey Arnborg]

Daðey
February 15, 2006   12:59 PM PST
 
Já, þegar ég segi mjólk, þá meina ég auðvitað undanrenna eða fjörmjólk :)
Verðandi Mjóna
February 16, 2006   09:16 AM PST
 
Huummm hljómar alveg ágætlega.....maður ætti kannksi að prufa þetta
muldur
February 16, 2006   12:30 PM PST
 
ó my ó my ætla að reyna þetta, í alvöru er algjör súkkulaði fíkill í sífelldri leit af einhverju sem gæti blekkt mig, hinar aðferðirnar eru sko ekki alveg að duga, en finnst búðingurinn góður, ég ætla svo að láta þig vita og alla aðra, dísus hvað þú ert sniðug
til hamingju með smjörlíkisstykkið :)
Daðey
February 16, 2006   12:36 PM PST
 
Passa bara að stinga röri eða einhverju ofan í súkkulaðið þegar maður er búinn að setja það í formið, bara til að það séu örugglega ekki loftgöt,bara rétt hræra í þessu og svo í frost:)
DDV-bolla
March 19, 2006   05:35 PM PST
 
Notarðu heilan pakka af búðingsduftinu?
Daðey
March 20, 2006   11:39 AM PST
 
Nei, ég nota bara smá...það eru 50g af búðingsdufti í 5dl mjólk...svo ég setti 20g af búðing í 2dl mjólk :)
DDV-bolla
March 20, 2006   02:06 PM PST
 
Ok.. takk. Ég var að gera þetta áðan og sá það líka strax þegar ég var búin að setja 6 tsk af duftinu útí að það var alveg nóg. Hlakka rosa til að koma heim í kvöld og smakka :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry