Uppskriftin að grænu súpunni

400gr blómkál
200gr brokkolí
2 laukar
1 súputeningur (grænmetis)
Vatn látið fljóta yfir
Salt og pipar
Sætuefni
Soðið þar til orðið vel mjúkt, grænmeti veitt upp úr og hakkað í blandara eða einhverju álíka. Helti soðinu í skál og setti grænmetismaukið aftur út í pottinn (tóman). Notaði svo soðið til að þynna súpuna út :)
Setti svo 50gr af sýrðum rjóma út í áður en ég borðaði og það gerði sko heldur betur gæfumuninn. Mjög góð súpa!
Skrifað klukkan 10:28 pm af: [Daðey Arnborg]
 |  |  |
Bigmamma February 13, 2006 10:48 PM PST
Ég verð að prófa þessa sem fyrst ummm örugglega mjög góð.
Kveðja Helga |
 |

 |  |  |
scully February 14, 2006 08:13 AM PST
Vá hvað þetta er flott síða hjá þér, gangi þér áfram svona vel, og með vigtina í dag, takk fyrir að deila með okkur uppskriftum |
 |

 |  |  |
Björk February 14, 2006 05:42 PM PST
Þetta hljómar vel !
Þetta verð ég að prófa á næstunni :-) |
 |

 |  |  |
zomby February 14, 2006 07:40 PM PST
jamm, verð að prófa þessa við tækifæri |
 |

 |  |  |
smarties February 28, 2007 04:55 PM PST
hæ datt inná síðuna þína, er líka í DDV hefuru prófað að gera stóran skammt af þessari súpu? á við ætli það sé óhætt að eiga hana í ískápnum í viku, er komin með ógeð á tómatssúpunni :( |
 |